Skólanefnd mun frá árinu 2010 veita einstaklingum og/eða stofnunum sem skarað hafa fram úr í eftirtöldum tveimur flokkum viðurkenningar, við hátíðlega athöfn. Skólanefnd ákveður fjölda viðurkenninga ár hvert að fenginni tillögu valnefndar.
Skólar/Kennarahópar/Kennari
Foreldrar, nemendur, kennarar, skólar og bæjarstofnanir geta tilnefnt verkefni í skóla til viðurkenningar. Tilnefna má nýbreytniverkefni um hvaðeina í skólastarfi sem unnið hefur verið að á yfirstandandi skólaári, nemendavinnu, vinnu hópa eða einstaklinga, upplýsingamiðlun (s.s. heimasíður og fréttabréf), stefnumótun og skipulag, starf eins kennara eða samvinnu þeirra, verkefni í almennri kennslu, sérgreinum eða sérkennslu, framlag annars starfsfólks skólans, forvarnarstarf, félagsstarf eða foreldrasamstarf.
Nemendur.
Skólar setja sér reglur um það hvaða nemendur þeir tilnefna til viðurkenninga og senda til valnefndar. Tilnefningar eru óháðar aldri. Viðurkenningu má veita fyrirgóðan námsárangur, góðar framfarir í námi, virkni í félagsstarfi, að vera jákvæð fyrirmynd, sýna frumkvæði eða leiðtogahæfileika, frábæra frammistöðu í íþróttum eða listum, listsköpun eða tjáningu í skólastarfi, félagslega færni, samskiptahæfni og framlag til að bæta eða auðga bekkjaranda/skólaanda, nýsköpun og/eða hönnun.
Þessi samþykkt nær til allra leik-, grunn- og tónlistarskóla sem Akureyrarbær rekur eða styrkir.
Tilnefningar skulu hafa borist valnefnd fyrir 9. maí 2010 . Viðurkenningar verði afhentar í lok skólaársins og verður tímasetning auglýst í maí ár hvert.
Valnefnd verður skipuð einum fulltrúa úr skólanefnd, einu foreldri sem tilnefnt er af Samtaka og foreldrum leikskólabarna og einum fulltrúa frá Skólaþróunarsviði HA. Fræðslustjóri er starfsmaður valnefndar.
v/Skólastíg | 600 Akureyri kt. 410169-6229 Sími: 414-7900 Frístund sími 414-7979 Netfang: brekkuskoli@akureyri.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um veikindi eða óskir um leyfi nemenda: 414 7900 / brekkuskoli@akureyri.is