Samkvæmt skólastefnu Akureyrarbæjar skal árlega, veita þeim einstaklingum eða stofnunum sem skarað hafa
fram úr í skólastarfi viðurkenningar. Markmiðið er að vekja sérstaka athygli á því sem vel er gert og hvetja þá
sem fyrir valinu verða til þess að halda áfram því góða starfi sem þeir eru að vinna og jafnvel gera enn betur.
Viðurkenning er einnig staðfesting á að viðkomandi skóli/kennari/nemandi er fyrirmynd annarra á því sviði
sem viðurkenning nær til.
Foreldrar, nemendur, kennarar, skólar og bæjarstofnanir geta tilnefnt verkefni í skóla til viðurkenningar.
Tilnefna má nýbreytniverkefni um hvaðeina í skólastarfi sem unnið hefur verið að á yfirstandandi skólaári,
nemendavinnu, vinnu hópa eða einstaklinga, upplýsingamiðlun (s.s. heimasíður og fréttabréf), stefnumótun
og skipulag, starf eins kennara eða samvinnu þeirra, verkefni í almennri kennslu, sérgreinum eða sérkennslu,
framlag annars starfsfólks skólans, forvarnarstarf, félagsstarf eða foreldrasamstarf.
Skólar setja sér reglur um það hvaða nemendur þeir tilnefna til viðurkenninga og senda til valnefndar.
Tilnefningar eru óháðar aldri. Viðurkenningu má veita fyrir góðan námsárangur, góðar framfarir í námi,
virkni í félagsstarfi, að vera jákvæð fyrirmynd, sýna frumkvæði eða leiðtogahæfileika, frábæra
frammistöðu í íþróttum eða listum, listsköpun eða tjáningu í skólastarfi, félagslega færni, samskiptahæfni
og
framlag til að bæta eða auðga bekkjaranda/skólaanda, nýsköpun og/eða hönnun.
Tilnefningar berist rafrænt fyrir 9. maí ár hvert. Viðurkenningar verði afhentar í lok skólaársins og verður
tímasetning auglýst í maí ár hvert. Valnefnd verður skipuð einum fulltrúa úr skólanefnd, einu foreldri sem
tilnefnt er af Samtaka og foreldrum leikskólabarna og einum fulltrúa frá Skólaþróunarsviði HA. Fræðslustjóri
er starfsmaður valnefndar. Hægt er að leggja inn tilnefningu á vefsíðunni
http://skoladeild.akureyri.is/is/news/vidurkenning_skolanefndar_fyrir_framurskarandi_skolastarf/