Valgreinar skólaárið 2012 - 2013

Frá árshátíð 2012
Frá árshátíð 2012
Ýmsar breytingar fylgja því að fara úr 7. bekk í þann 8. Ein stærsta breytingin er í því fólgin að á unglingastigi er hluti kennslustunda val nemenda þar sem valið er á milli kjörsviðsgreina. Hver nemandi þarf að skila 37 kennslustundum á viku.  Í kjarna eru 29 kennslustundir hjá 9. og 10. bekk en 31 kennslustund í 8. bekk. Hver kjörsviðsgrein samsvarar 2 kennslustundum á viku því þurfa nemendur í 9. og 10. bekk að velja 4 greinar en 8. bekkjar nemendur 3 greinar.
Kjörsviðsgreinar eru ekki aukagreinar heldur eru þær jafn mikilvægar og skyldugreinarnar og kröfur um ástundun og árangur eru á engan hátt minni.
Gott getur verið að huga að framtíðaráformum strax í efstu bekkjum grunnskólans og þess vegna er mikilvægt að vanda ákvarðanatöku um kjörsviðsgreinar. Það hefur ekki áhrif á rétt nemenda til framhaldsnáms hvaða kjörsviðsgreinar þeir velja sér en það getur auðveldað framhaldsnám að hafa tekið greinar í grunnskóla sem skiptir máli fyrir þá námsbraut í framhaldsskóla sem nemandi stefnir að.

Við boðum hér til kynningarfundar fyrir foreldra nemenda í tilvonandi 8. bekk þar sem farið verður yfir framboð kjörsviðsgreina og fyrirkomulagið útskýrt.

Fundurinn verður á sal Brekkuskóla, fimmtudaginn 3. maí kl. 16:00-17:00. Hann er hugsaður fyrir foreldra/forráðamenn og nemendur en auk þess förum við yfir þessa hluti með nemendum í kennslustund fyrr um daginn.

Kynningarbæklingur fyrir verðandi nemendur 8., 9. og 10. bekkjar

Umsóknareyðublað fyrir 8. bekkinga

Umsóknareyðublað fyrir 9. og 10. bekkinga

Vonumst til að sjá ykkur sem allra flest.

Með bestu kveðju,
Steinunn Harpa, náms- og starfsráðgjafi - steinunnh@akmennt.is
og Sigríður Kristín, deildarstjóri - sigga@akmennt.is