Útivistartími eftir 1. september

Þann 1. september sl. breyttist útivistartími barna og unglinga. Börn yngri en 12 ára mega ekki vera úti eftir kl. 20 og unglingar yngri en 16 ára mega ekki vera úti eftir kl.22. Reglum um útivistartímann er ætlað að standa vörð um hag barna og unglinga og styðja við foreldra í uppeldishlutverki sínu. Mikilvægt er að börn og unglingar fái næga hvíld til að sinna skóla og öðrum þeim fjölmörgu verkefnum sem þau fást við í daglegu lífi sínu. Því er jafnframt mikilvægt fyrir foreldra og aðra uppalendur að huga að „rafrænum útivistartíma“ barna og unglinga, þ.e. tölvu- og farsíma! notkun þeirra á kvöldin. SAMAN-hópurinn hvetur foreldra til að standa saman um útivistartímann og ræða saman og við börn sín og unglinga um þessi mál.    

Sigurvegar í sumarleik SAMAN-hópsins 2010

 

 


Vinningshafi örsögukeppninnar sem var sumarleikur SAMAN-hópsins 2010 er Karen Helenudóttir. Karen sendi inn söguna Bostonferðin mín og mömmu. Verðlaunin voru ekki af verri endanum, úttekt fyrir bensíni hjá Orkunni að upphæð 30.000.- og helgargisting fyrir alla fjölskylduna á Hótel KEA á Akureyri. SAMAN- hópurinn óskar Karen til hamingju með sigurinn.

 

 

Söguna hennar Karenar má finna á heimasíðu SAMAN-hópsins og þakkar þeim sem sendu ! inn sögur í keppnina.

 

 

http://samanhopurinn.is/index.php?option=content&task=view&id=146&Itemid=109

 

 

 

Með kveðju,
Gréta Kristjánsdóttir forvarnarfulltrúi