Upplestrarhátíðin í 7. bekk

Lundarskóli varð í 1. og 2. sæti í Stóru upplestrarkeppninni sem haldin var hátíðleg miðvikudaginn 11. mars. Oddeyrarskóli hreppti 3. sætið. Nemendur Brekkuskóla stóðu sig með mikilli prýði og þökkum við keppendum, varamönnum þeirra, kennurum í 7. bekk sem og öllum nemendum í 7. bekk fyrir drengilega keppni. Myndir munu birtast hér innan tíðar.