Þemadagar og haustfrí

Þá er seinni degi þemadaga að ljúka...

Hér hefur Uppbyggingarstefnan ráðið ríkjum síðustu tvo daga og hafa nemendur sem og kennarar unnið frábært starf. Í næsta fréttabréfi Brekkuskóla verður fjallað ítarlega í máli og myndum um þemadagana.

Eftir helgi tekur síðan haustfrí við mánudag og þriðjudag en Frístund er opin báða dagana.