Sylvia og Gunnar ásamt kennurum sínum
Þann 7. mars síðastliðinn var Stóra upplestrarkeppnin haldin í húsakynnum MA. Fyrir hönd Brekkuskóla kepptu þau Gunnar Sigurðsson úr 7. KI og Sylvía Siv Gunnarsdóttir úr 7. GÞ og stóðu þau
sig með stakri prýði.
Gunnar og Sylvia báru sigur úr býtum í undankeppninni sem haldin var í Brekkuskóla 1. mars þar sem öllum nemendum árgangsins var
boðið að taka þátt. Í undankeppninni voru einnig valdir varamenn sem voru þær Erla Kolfinna Bjarnadóttir og Auður Ingvarsdóttir.
Hér getið þið nálgast myndir frá
keppninni og
undankeppninni.
Sigurvegarar þetta árið voru Steinar Logi Stefánsson nemanda í Síðuskóla í þriðja sæti, Dagný Þóra
Óskarsdóttir nemandi í Lundarskóla var í öðru sæti og
sigurvegarinn árið 2012 var Sölvi
Halldórsson einnig nemandi í
Lundarskóla.