Stóra upplestrarkeppnin

Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk verður nú haldin í ellefta sinn á þessu skólaári. Lokakeppnin mun fara fram í Kvos Menntaskólans á Akureyri eins og undanfarin ár. Keppnin fer fram mánudaginn 16. mars 2009 kl.17:00 - 19:00. Undankeppni hefur farið fram hér í skólanum til að velja úr þá keppendur sem munu koma fram fyrir hönd skólans. Keppendur Brekkuskóla verða þeir Bjarmi Þórgnýsson Dýrfjörð og Alexander Jósep Blöndal. Til vara verða þær Steinunn Atladóttir og Sigrún Mary McCormicK