Á vefnum má velja á milli nokkurra smábóka sem allar hafa komið
út hjá Námsgagnastofnun. Markmiðið er að þjálfa lestur, efla lesskilning og lestraráhuga og gefa börnum á yngsta stigi
grunnskólans tækifæri til að nota tölvu sér til gagns og á skipulegan hátt.
Börnin geta ýmist lesið textann beint eða hlustað og fylgst með
honum fyrst og lesið svo sjálf. Á hverri blaðsíðu eru spurningar úr textanum og lítið verkefni sem ýmist reynir á að raða
stöfum rétt í orð (undirbúningur undir stafsetningu) eða raða orðum í setningu (lesskilningur), finna samheiti og andheiti og orð sem passa saman
(orðaforði).
Veffang: http://vefir.nams.is/smabokaskapur/
Sótt á vef Námsgagnastofnunar 5. janúar 2014