Foreldrabréf vegna skólabyrjunar 2015

Skólabyrjun skólaárið 2015 – 2016 Foreldrabréf til foreldra í Brekkuskóla. Föstudaginn 21. ágúst og mánudaginn 24. ágúst 2015eru samtalsdagar hér  í Brekkuskóla. Þessa daga er ekki kennsla, en ætlast er til þess að nemendur mæti ásamt forráðamönnum til samtals við umsjónarkennara annan hvorn þessara daga.  Við höfum það fyrirkomulag á við niðurröðun foreldra í samtöl, að foreldrar sjálfir bóka sig í samtalstíma hjá umsjónarkennara í gegnum www.mentor.is.   Þá er farið inn á fjölskylduvef mentor og smellt á hlekk sem birtist hægra megin á síðunni - "bóka foreldraviðtal".

Hér eru greinagóðar leiðbeiningar ef lykilorð aðstandenda vantar eða er glatað: https://www.youtube.com/watch?v=ifwOntk280M 

Greinargóðar leiðbeiningar vegna bókunar í samtöl má finna á slóðinni:
https://www.youtube.com/watch?v=lLHx3ngQD6g

Foreldrar barna sem eiga fleiri en eitt barn í skólanum fengu þessa tilkynningu fyrir helgi til að þeir hefðu smá forskot til að bóka samliggjandi tíma fyrir systkini.

Ef þið lendið í vandræðum eða óskið eftir aðstoð við þetta er um að gera að hafa samband við ritara skólans.  Ef þið finnið alls enga tímasetningu sem ykkur hentar biðjum við ykkur um að hafa beint samband við viðkomandi umsjónarkennara.

Stjórnendur