Samtalsdagar

Mánudaginn 10. febrúar og þriðjudaginn 11. febrúar verða samtalsdagar í Brekkuskóla. Þessa daga er ekki kennsla, en ætlast er til þess að nemendur mæti ásamt forráðamönnum til allt að 30 mínútna viðtals við umsjónarkennara annan hvorn þessara daga.  Við prófum nú nýtt fyrirkomulag á niðurröðun viðtala sem felur í sér að foreldrar sjálfir bóka sig í samtalstíma hjá umsjónarkennara í gegnum www.mentor.is.   Þá er farið inn á fjölskylduvef mentor og smellt á hlekk sem birtist hægra megin á síðunni - "bóka foreldraviðtal". Greinargóðar leiðbeiningar vegna þessa má finna á slóðinni:
https://www.youtube.com/watch?v=lLHx3ngQD6g sem sent var í netpósti til allra foreldra 28. janúar 2014.

Foreldrar barna sem eiga fleiri en eitt barn í skólanum fengu tilkynningu um þetta fyrirkomulag deginum áður, til að þau hefðu örlítið forskot til að finna samliggjandi tíma. Bókunum ætti nú að vera að mestu lokið en skráning er í allra síðasta lagi  föstudaginn 7. febrúar 2014.

Ef þið lendið í vandræðum eða óskið eftir aðstoð við þetta er um að gera að hafa samband við ritara skólans.  Ef þið finnið alls enga tímasetningu sem ykkur hentar biðjum við ykkur um að hafa beint samband við viðkomandi umsjónarkennara.