SAFT - stofnun ungmennaráðs

SAFT - Samfélag, fjölskylda og tækni, vakningarátak um örugga tækninotkun barna og unglinga á Íslandi, hefur hafið undirbúning að stofnun ungmennaráðs.  

Ungmennaráðið samanstendur af krökkum á aldrinum 12-18 ára sem koma alls staðar að af landinu. Ráðið mun aðstoða við uppfærslu á heimasíðu SAFT,   Facebook og Myspace síðum verkefnisins. Ráðið mun einnig vinna hugmyndir um það hvernig eigi að kenna ánægjulega og örugga netnotkun í skólum landsins, koma að hönnun kennsluefnis, vera ráðgefandi um hönnun og framkvæmd herferða, sinna jafningjafræðslu og halda erindi á foreldrafundum.

Allir sem eru í ráðinu hafa áhuga á netinu og öllum þeim möguleikum sem það hefur upp á að bjóða og geta unnið með öðrum í því að gera netið að öruggari stað fyrir okkur öll. Ungmennaráðið hittist einu sinni á ári þar sem skoðuð er nýjasta tækni og málin rædd. Ráðið mun einnig halda fjarfundi fjórum sinnum á ári, þá með aðstoð tölvutækninnar. Ráðgert er að fulltrúar ráðsins sitji árlegan Evrópufund ungmennaráða.

Í tilefni af stofnun ungmennaráðs efnir SAFT til samkeppni um logo fyrir ungmennaráð. Hugmyndum má skila inn rafrænt á saft@saft.is fyrir 22. maí. Úrslit verða tilkynnt 29. maí.

Ungt fólk getur gengið til liðs við ungmennaráðið með því að fylla út eyðublað á www.saft.is. Sérstakir sendiherrar verða svo tilnefndir til þess að fara fyrir starfsemi ungmennaráðs á sínu heimasvæði.

Nánari upplýsingar má finna á http://www.saft.is/

 

Hvað er ungmennaráð?

 

·         Ungmennaráðið samanstendur af krökkum á aldrinum 12-18 ára sem koma alls staðar að af landinu.

 

 

·         Ráðið mun aðstoða við uppfærslu á heimasíðu SAFT, Facebook og Myspace síðum verkefnisins. Ráðið mun einnig vinna hugmyndir um hvernig eigi að kenna ánægjulega og örugga netnotkun í skólum landsins, koma að hönnun kennsluefnis, er ráðgefandi um hönnun og framkvæmd herferða, sinnir jafningjafræðslu og halda erindi á foreldrafundum.

 

 

·         Allir sem eru í ráðinu hafa áhuga á netinu og öllum þeim möguleikum sem það hefur upp á að bjóða og geta unnið með öðrum í því að gera netið að öruggari stað fyrir okkur öll. Það þýðir samt ekki að þú þurfir að kunna allt sem viðkemur tölvum – þú þarft bara að hafa skoðun á málinu!

 

 

 

 

 

Hvernig vinnur ungmennaráðið?

 

 

·         Ungmennaráðið hittist einu sinni á ári þar sem við skoðum nýjustu tækni, ræðum málin og borðum góðan mat. Ef þú verður valin/nn þá mun SAFT greiða ferðakostnað og gistingu fyrir þig og foreldri eða forráðamann á fundarstað og einnig allt það skemmtilega sem við munum gera á meðan á fundinum stendur. Ráðið mun einnig halda fjarfundi fjórum sinnum á ári, þá með aðstoð tölvutækninnar.

 

 


Hvernig sæki ég um?

 

 

·         Þú þarft að fylla út eyðublað sem má finna undir Ungmennaráð á www.saft.is og senda til okkar á saft@saft.is. Við förum í gegnum umsóknina þína og sendum þér svar um hæl. Við reynum að móta ungmennaráð sem gefur góða mynd af samsetningu ungmenna á Íslandi og því er ekki sjálfgefið að allir sem hafa áhuga geti orðið fyrir valinu.

 

 

 

 

Ef þú verður valin?

 

 

·         Ef þú verður valin/nn þá munum við senda þér tölvupóst með upplýsingum um ráðið og hvenær næsti fundur verður haldinn. Passaðu að skrifa netfangið þitt rétt á umsóknina!

 

 

 

 

P.S.Í tilefni af stofnun ungmennaráðs efnir SAFT til samkeppni um logo ungmennaráðs. Hugmyndum má skila inn rafrænt á saft@saft.is fyrir 22. maí. Úrslit verða tilkynnt 29. maí.