Rafrænt einelti - málþing á vefnum

MÁLÞING UM RAFRÆNT EINELTI (sent beint út á vefsjónvarpi KHÍ, sjá hér neðar) Í tilefni að alþjóðlega netöryggisdeginum 10. febrúar stendur SAFT fyrir málþingi um rafrænt einelti í Skriðu, Háskóla Íslands, við Stakkahlíð, kl. 14.30 – 16.15. Á málþinginu, sem heilbrigðisráðherra setur, verður m.a. fjallað um: · tegundir og birtingaform rafræns eineltis · nýja rannsókn á rafrænu einelti · tæknilegt umhverfi rafræns eineltis · eftirlit foreldra · afskipti og meðferð lögreglunnar á rafrænu einelti · sál- og félagsfræðilegar hliðar eineltis Fundarstjóri verður Þorlákur Helgason, framkvæmdastjóri Olweusarverkefnisins á Íslandi. Þátttökugjald á málþing er ekkert en gestir eru vinsamlega beðnir um að tilkynna þátttöku á saft@saft.is. Boðið verður upp á veitingar. Sérstök athygli er vakin á því að málþingið verður einnig sent út á vefnum, vefslóð fyrir netútsendingu er http://sjonvarp.khi.is/.Nánari upplýsingar á heimasíðu SAFT,