Þeir nemendur í 8. - 10. bekk sem fá þátttöku í félagsstarfi eða sérskólanámi viðurkennda í stað
valgreinar (eru með "metið val" á stundaskrá), þurfa að skila inn staðfestingu þess efnis frá forráðamanni og fulltrúa
félags eða sérskóla.
Umsóknareyðublað:
http://brekkuskoli.is/static/files/umsoknummetidval2012-2013.pdf
Síðar á þessari önn munum við síðan óska eftir því við viðkomandi kennara/þjálfara/flokksstjóra að hann
staðfesti ástundun. Með þátttöku í félagsstarfi og sérskólum er átt við íþróttir, skátastarf,
kristilegt starf, nám í tónlistarskóla, myndlistarskóla o.þ.h.
Staðfesting forráðamanns og fulltrúa félags eða sérskóla þarf að hafa borist skólanum eigi síðar en 1. nóvember
2012!
Umsóknum skal skilað til umsjónarkennara eða á skrifstofu skólans. Einnig má skila því útfylltu inn á
beggath@akureyri.is. Eyðublöð má einnig nálgast á skrifstofu skólans.