Klukkutíma kóðun

Í Brekkuskóla kynnum við klukkutíma kóðun (forritun) fyrir nemendum og kennurum. Klukkutíma kóðun/forritun "The Hour of Code" er alþjóðlegt verkefni sem  tugmilljónir nemenda frá 180+ löndum taka þátt í. Engin reynsla er nauðsynleg til að taka þátt í klukkutíma kóðun/forritun og hún hentar öllum á aldrinum 4 - 104 ára, eins og segir í kynningunni þeirra. Nánari kynning á verkefninu er hér. Code heldur úti nokkrum verkefnum sem má finna í kóðastúdíóinu þeirra á Code.org   Kóðaðu með Önnu og Elsu.Þetta skemmtilega verkefni hefur verið útbúið til að vekja sérstaka athygli á forritun. Forritun er hér notuð sem leið til að fylgja Önnu og Elsu þegar þær kanna töfra og fegurð íssins. Í verkefninu er snjókorn og mynstur búið til með því að láta þær skauta um ísinn og svo getur þú einnig búið til eigin vetrarveröld til að deila með vinum! Hægt er  að taka þátt í Frozen forritun hér, sem inniheldur um leið góðar leiðbeiningar. Prófaðu endilega. Staðreyndir um forritunarvikuna.