Jóladagatal grunnskólanna

Jóladagatal grunnskólanna á vegum Samgöngustofu, hefur göngu sína sunnudaginn 1. desember. Í dagatalinu segir frá fjölhæfum dýrum sem feta sig áfram í umferðinni. Á hverjum degi birtist ný spurning sem grunnskólabörn geta svarað þegar þau opna jóladagatalið á www. umferd.isMeð þátttöku komast nemendur í verðlaunapott en tveir heppnir þátttakendur eru dregnir út á hverjum degi og fá þeir tvo bíómiða hvor. Allir þátttakendur geta merkt svör sín með nafni bekkjar og skóla en þannig kemst bekkurinn í sérstakan bekkjarverðlaunapott. Í janúar verður svo einn heppinn bekkur dreginn út og hlýtur hann að launum pizzuveislur og DVD mynd. Nemendur og bekkir eru hvattir tila ð taka þátt í jóladagatalinu, sem er í senn skemmtilegt og fræðandi. Jóladagatal grunnskólanna á  www.umferd.is frá 1. desember til 24. desember.