Brekkuskóla var færð gjöf í tilefni af því að Örn Ingi Gíslason myndlistarmaður hefði orðið 75 ára 2. júní 2020. Verkið er innsetningarverk og vonandi nemendum innblástur í listsköpun. Það er gefið með ósk um að nemendur kveiki á perunni og láti ljósið loga.
Örn Ingi var sjálfmenntaður myndlistarmaður og fékkst við landslagsmálverk, ljósmyndir, gjörninga, skúlptúra og innsetningar. Hann var um langt skeið ein af driffjöðrunum í menningarlífi Akureyrar auk þess að fást við kennslu og dagskrárgerð fyrir útvarp og sjónvarp.
Brekkuskóli þakkar fyrir þessa fallegu gjöf:-)
v/Skólastíg | 600 Akureyri kt. 410169-6229 Sími: 414-7900 Frístund sími 414-7979 Netfang: brekkuskoli@akureyri.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um veikindi eða óskir um leyfi nemenda: 414 7900 / brekkuskoli@akureyri.is