Fréttabréf - desember

Fréttabréf desembermánaðar  er komið út. Meðal efnis er dagskrá litlu jóla 19. desember og viðburðadagatal. Lögð er áhersla á mikilvægi endurskinsmerkja þegar við erum utandyra í snjólausu skammdeginu og birt eru sýnishorn af myndum frá árshátíð skólans sem haldin var í nóvember. Fleiri myndir má nálgast hér á vef skólans.