Fjallaferð Brekkuskóla 16. mars

Miðvikudaginn 16. mars er áætlað að allur skólinn fari í Hlíðarfjall til að njóta samveru og útiveru. Þeim nemendum sem ekki geta farið í fjallið af einhverjum ástæðum verður boðið upp á afþreyingu í skólanum. Nemendur mæta í stofur samkvæmt stundaskrá þar sem merkt verður við þá. Farið verður frá skólanum sem hér segir: 8. – 10. bekkur kl. 08:15 4. – 7. bekkur kl. 08:45 1. – 3. bekkur kl. 09:15 Lagt verður af stað úr Hlíðarfjalli sem hér segir: 1. – 3. bekkur kl. 11:30 4. – 7. bekkur kl. 12: 00 8. – 10. bekkur kl. 12:30 Þegar komið er í skóla aftur verður matur í matsal samkvæmt venju og eftir það fara nemendur heim eða í Frístund. Skólabíll fer frá skólanum kl. 12:45 og 13:50 þennan dag.  

Útbúnaður:

*     Snjóþotur, skíði, bretti, svartir plastpokar og snjósleðar eru leyfðir til fararinnar. Fyllsta öryggis verður gætt. Starfsfólki verður dreift á svæðið.

*     Hjálmar æskilegir.

*     Mikilvægt er að nemendur séuvel klæddir og í velmerktum fatnaði. Ekki gleyma snjóbuxunum, vettlingunum eða húfunni.

*     Nesti í vel merktum umbúðum/tösku.

 

Þær lyftur sem verða opnar eru: Töfrateppið, Hólabraut, Skálabraut, og Hjallabraut. Ef nemendur óska eftir að verða eftir í fjallinu þegar dagskrá lýkur þurfa þeir að hafa samþykki foreldra sem láta umsjónarkennara vita.  Lyftukortin gilda allan daginn en skila þarf búnaði eða semja um leigu á honum.  Ekki er hægt að bjóða upp á skíðakennslu en við munum aðstoða nemendur eins og kostur er.

Foreldrar eru velkomnir á eigin bílum.

 

 Stjórnendur og starfsfólk Brekkuskóla