Á laugardag taka unglingarnir þátt í hinum ýmsu smiðjum sem m.a. tengjast útivist, matseld, handverki og fjölmiðlum svo fátt eitt
sé nefnt. Dagurinn endar á hátíðarkvöldverði og balli á Bolungarvík. Landsmótinu líkur á sunnudag með Landsþingi
ungs fólks sem ungmennaráðið skipuleggur og stýrir. Þar munu landsmótsgestir ræða ýmis mál sem brenna á ungu
fólki.
Samfés, samtök félagsmiðstöðva á Íslandi standa fyrir fjölda viðburða fyrir félagsmiðstöðvar og unglinga ásamt
því að sinna fjölmörgum öðrum verkefnum. Aðalmarkmið Samfés er að stuðla að aukinni félags- og
lýðræðisþátttöku ungs fólks á Íslandi.
v/Skólastíg | 600 Akureyri kt. 410169-6229 Sími: 414-7900 Frístund sími 414-7979 Netfang: brekkuskoli@akureyri.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um veikindi eða óskir um leyfi nemenda: 414 7900 / brekkuskoli@akureyri.is