Vorskóli - 5 ára nemendur 2010 - 2011

Vorskóli fyrir innritaða nemendur í 1. bekk skólaárið 2010 - 2011 verður þriðjudaginn 18. maí og miðvikudaginn 19. maí kl. 14:00 - 16:00.

Nemendur koma í fylgd foreldra/foreldris og hitta verðandi kennara sína sem undirbúið hafa þessar stundir með þeim.
Tilgangur heimsóknarinnar er að nemendur og kennarar hittist í fyrsta skipti í skólanum og geti rætt saman um það sem bíður þeirra í haust.
Leitast verður við að hafa stundina notalega þar sem kennarar lesa fyrir þau og  gefa þeim kost á að spreyta sig á einföldum verkefnum.
Boðið verður upp á hressingu frá skólanum í mötuneytinu í hléi báða dagana.

Reiknað er með að foreldrar skilji börnin eftir í skólanum þennan tíma. Ef þau treysta barninu ekki til þess að vera eitt er sjálfsagt að dvelja með þeim þennan tíma. Foreldrar þekkja börn sín best.

Ætlast er til að nemendur verði sóttir kl.16:00 báða dagana.

Foreldrafundur
Foreldrafundur verður á sal skólans síðari vorskóladaginn 19. maí kl.14:45. Þar munu stjórnendur skólans fara yfir helstu upplýsingar um skólann og skólastarfið og Rósa G. Eggertsdóttir ráðgjafi frá Skólaþróunarsviði HA mun kynna kennsluaðferðina.

Sjáumst í skólanum!

Sigrún, Ragnheiður, Bergþóra og Rósa