Í gær fór fram upplestrarkeppni grunnskólanna á Akureyri, sem ber heitið Upphátt. Fulltrúar nemenda í 7. bekk allra grunnskólanna tóku þátt og var keppnin var haldin í Háskólanum á Akureyri. Fulltrúar Brekkuskóla voru Valur Darri Ásgrímsson og Inga Karen Björgvinsdóttir. Þau stóðu sig vægast sagt vel, lönduðu bæði verðlaunasætum, Valur Darri 1. sæti og Inga Karen 3. sæti.
Fyrir keppnina lögðu bæði nemendur og kennarar talsverða vinnu við undirbúning, en upphaf hennar er á degi íslenskra tungu, 16. nóvember ár hvert. Sá hluti keppninnar er kallaður ræktunarhluti þar sem allir nemendur 7. bekkjar leggja sérstaka áherslu á upplestur, vandaðan framburð, framkomu og túlkun orða.
Við óskum þeim báðum og 7. bekk í Brekkuskóla innilega til hamingju með þennan frábæra árangur!
v/Skólastíg | 600 Akureyri kt. 410169-6229 Sími: 414-7900 Frístund sími 414-7979 Netfang: brekkuskoli@akureyri.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um veikindi eða óskir um leyfi nemenda: 414 7900 / brekkuskoli@akureyri.is