Vakin er athygli á að skóladagatal næsta skólaárs er komið á vefinn og einnig námsgagnalistar (innkaupalistar)til að hafa til hliðsjónar við undirbúning skólaársins.
Vakin er sérstök athygli á að námsgagnalistarnir eru einungis hafðir til viðmiðunar um það sem nemendur þurfa að hafa með sér í skólann. Við hvetjum nemendur og foreldra til að nýta hálfunnar bækur, möppur, skriffæri, liti ofl. fyrir næsta skólaár. Námsgögn er ekki nauðsynlegt að kaupa fyrr en í upphafi skólaársins.
Námsbækur fá nemendur afhentar í upphafi skólaársins. Við leggjum áherslu á að nemendur fari vel með námsbækurnar og eru margar þeirra skráðar út af bókasafni á nafni barnsins. Það gerum við til að leggja enn frekari áherslu á verðmæti bókanna sem þau fá lánaðar.
Leitast verður við að foreldrar nemenda í 1. bekk greiði námsgagnagjald eins og undanfarin ár, en þau fá þá allt efni til náms, pappír, liti og skriffæri afhent í skólanum. Þetta hefur gefist vel í því skipulagi sem þar er unnið eftir.
v/Skólastíg | 600 Akureyri kt. 410169-6229 Sími: 414-7900 Frístund sími 414-7979 Netfang: brekkuskoli@akureyri.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um veikindi eða óskir um leyfi nemenda: 414 7900 / brekkuskoli@akureyri.is