Skipulag skólastarfsins fyrir dagana 23. nóvember til og með 1. desember.
Allir nemendur verða í staðnámi en áfram verður nokkur skerðing á skólastarfinu sérstaklega hjá nemendum í 7.-10. bekk sem munu ljúka sínum skóladegi fyrr en venjulega og fá ekki mat í skólanum. List- og verkgreinar ásamt valgreinum verða ekki kenndar í 8. -10. bekk.
Ef til þess kemur að starfsfólk vantar getur þurft að senda nemendahópa heim.
Íþróttir og sund koma inn skv. stundaskrá hjá 1. - 7. bekk. Í 8. - 10. bekk verða útiíþróttir en hefðbundin sundkennsla.
Skylda er að nemendur í 8. - 10. bekk komi með grímur og þurfa því miður að hafa þær allan tímann í skólanum nema þegar þeir fara í útifrímínútur/íþróttir eða á meðan þau borða nesti sem þau þurfa að taka í heimastofu.
Ávaxta- og mjólkuráskrift verður í boði en því miður ekki hafragrautur. Ekki er gert ráð fyrir að nemendur noti samlokugrill eða örbylgjuofn í skólanum.
Nemendur koma inn um sína venjulegu innganga nema 2. bekkur sem heldur áfram að ganga inn að austanverðu.
Mæting og viðvera árganga:
1. - 3. bekkur kl. 8 -13:10 og Frístund f. skráð börn í 1. og 2. bekk
4. bekkur kl. 8 - og skóla lýkur skv. stundaskrá
5. bekkur kl. 8:05 - og skóla lýkur skv. stundaskrá
6. bekkur kl. 8:10 - og skóla lýkur skv. stundaskrá
7. bekkur kl. 8:15 - 12:20
8. bekkur kl. 8 -11:40
9. bekkur kl. 8 - 11:40
10. bekkur kl. 8 - 11:40
Því miður er ekki hægt að bjóða upp á Frístund fyrir 3. bekk.
Öll umferð um skólann verður áfram takmörkuð eins og mögulegt er og foreldrar eru beðnir um að virða það.
v/Skólastíg | 600 Akureyri kt. 410169-6229 Sími: 414-7900 Frístund sími 414-7979 Netfang: brekkuskoli@akureyri.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um veikindi eða óskir um leyfi nemenda: 414 7900 / brekkuskoli@akureyri.is