Formáli
Breytingar í samfélagi okkar einkennast meðal annars af aukinni tækninotkun, hraðri þróun í tækni- og hugbúnaði, auknu aðgengi
upplýsinga og auknum samskiptamöguleikum. Nemendur, foreldrar og starfsfólk Brekkuskóla vill hjálpast að við að takast á við þessar
breytingar og leitast við um leið að þær hafi jákvæð áhrif á árangur og virkni við nám og kennslu. Til að svo megi
verða hafa nemendur, foreldrar og starfsfólk Brekkuskóla gert með sér eftirfarandi sáttmála um notkun tölvu og tækja í
skólastarfinu sem tekur mið af megingildum skólans.
Sáttmáli um upplýsinga- og samskiptatækni í Brekkuskóla
· Menntun. Við nýtum upplýsinga- og samskiptatækni í námi og kennslu og leggjum okkur fram um
að efla gagnrýna hugsun í menntun til uppbyggingar.
· Gleði. Við leggjum okkur fram um að nota upplýsinga- og samskiptatækni af öryggi og að okkur
líði vel í allri umgengni um tæknina. Við virðum hvert annað í samskiptum og í allri notkun og meðferð samskiptatækja.
· Umhyggja. Við vöndum okkur í allri notkun og umgengni við upplýsinga- og samskiptatæki.
Brekkuskóli er samfélag þar sem við stöndum saman og sýnum umhyggju í allri notkun og meðferð samskiptatækja. Við dæmum ekki og erum
tilbúin til að aðstoða hvert annað.
· Framfarir. Við stefnum sífellt á að bæta árangur okkar í námi og kennslu um leið og við tökumst á við breytingar sem felast í tækniþróun í námi og kennslu. Við setjum okkur sífellt ný markmið við innleiðingu tækni í skólastarfinu og metum hvernig okkur tekst að ná þeim. Við leitumst við að efla okkur sem nemendur og starfsfólkog nýtum tæknina á uppbyggilegan og jákvæðan hátt og líklegt er að verði okkur til framdráttar.
Það gerum við með því að:
· nýta tæknina á uppbyggilegan hátt við nám og kennslu · virða verkstjórnarhlutverk kennara í kennslustundum · virða rétt félaga okkar til að stunda nám sitt án truflunar · virða rétt kennara til að kenna án truflunar · óska eftir leyfi kennara ef við viljum nota tölvur, síma og önnur samskiptatæki í kennslustund.
|
v/Skólastíg | 600 Akureyri kt. 410169-6229 Sími: 414-7900 Frístund sími 414-7979 Netfang: brekkuskoli@akureyri.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um veikindi eða óskir um leyfi nemenda: 414 7900 / brekkuskoli@akureyri.is