Þegar sól hækkar á lofti og klaki hverfur úr jörð fara nemendur að draga fram reiðhjól og önnur
hjólaleiktæki. Því viljum við minna skólasamfélagið á umgengnisreglur Brekkuskóla varðandi reiðhjól og önnur
hjólaleiktæki.
Umgengnisreglurnar eru eftirfarandi:
Nemendum skólans er heimilt að koma á reiðhjólum í skólann frá 7 ára aldri. Það er mjög mikilvægt að gengið
sé frá hjólum við skólann. Reiðhjól og önnur hjólaleiktæki eru alfarið á ábyrgð nemenda og forráðamanna
þeirra, einnig er það á ábyrgð forráðamanna að nemendur noti viðeigandi öryggisbúnað. Umferð reiðhjóla á
skólalóð á skólatíma er bönnuð. Umferð annarra hjólaleiktækja en reiðhjóla á skólalóð miðast
eingöngu við frímínútur og hádegi á malbikaða vellinum austan megin við aðalbyggingu. Því miður er ekki hægt að
geyma hjólaleiktæki inni í skólanum.