Efni á Rafbókavefnum er öllum aðgengilegt án endurgjalds.
Dreifði prófarkalestur Rafbókavefsins er opið verkefni sem hver sem er getur tekið þátt í. Markmiðið er að gera aðgengilegar rafrænar útgáfur bóka sem eru komnar úr höfundaréttarvernd sem og bóka sem höfundar hafa veitt leyfi fyrir að verði rafvæddar.
Þó við leggjum í tilefni dagsins áherslu á Ævintýri og sögur H.C. Andersen er rétt að benda á að fleiri rafbækur sem sjálfboðaliðar okkar hafa lesið yfir verða birtar þennan dag:
Umhverfis jörðina á 80 dögum eftir Jules Verne Fanginn í Zenda eftir Anthony Hope - þýdd af Ólafi Björnssyni Lítil saga um herhlaup Tyrkjans á Íslandi árið 1627 eftir Ólaf Egilsson Námur Salómons konungs eftir H. Rider Haggard - þýdd af Einari Kvaran Sagan af Natan Ketilssyni eftir Gísla Konráðsson
Þetta er fyrsti áfanginn í dreifðum prófarkalestri Rafbókavefsins sem er rétt að komast af stað. Meðal efnis sem sjálfboðaliðar okkar eru að lesa yfir eru Hómerskviður og Þjóðsögur Jóns Árnasonar.
v/Skólastíg | 600 Akureyri kt. 410169-6229 Sími: 414-7900 Frístund sími 414-7979 Netfang: brekkuskoli@akureyri.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um veikindi eða óskir um leyfi nemenda: 414 7900 / brekkuskoli@akureyri.is