Morgunmóttökur þessa viku

Morgunmóttaka verður hjá 1.bekk þriðjudaginn 9. nóv. niðri í stofum þar verður foreldrum boðið upp á kaffisopa.  Morgunmóttaka verður hjá 7.bekk föstudaginn 12. nóv. Morgunmóttökur eru frá klukkan 08:00-09:00 og er þá nokkurskonar opið hús. Foreldrar geta komið með barninu sínu, fengið sér kaffi og brauðbollu í matsalnum og litið við í stofu. Oft eru nemendur með verkefni til sýnis eða kynna það sem þau hafa verið að vinna að. Verðskrá fyrir brauðbollu er 150.- kr og kaffi 50.- kr. Ágóði rennur í sjóð hjá 4., 6. og 10. bekk.