Margföldunarrallý í 4. bekk

Í 4. bekk fer fram þjálfun í margföldunartöflunni. Það er gert með þeim hætti að börnin búa sér til bók með eyðublaði sem þau fá útfyllt af þeim sem hlusta á þau þylja töfluna. Hér má sjá upptöku af því hvernig þetta fer fram og hér má finna viðtal við einn nemandann um verkefnið.