Málþing í Menningarhúsinu Hofi

Málþing: Vernd og viðbrögð – Kynferðisbrot barna og ungmenna í nútímasamfélagi

Hvar: Menningarhúsinu Hofi

Hvenær: 23. apríl kl. 16:30-18:30

Í nútímasamfélagi eiga börn og ungmenni í sífellt meiri samskiptum í gegnum stafræna miðla – þar sem mörk geta orðið óskýr, hættur leynast og aðgengi gerenda að börnum er meira en nokkru sinni fyrr.

Málþingið tekur á alvarlegu og viðkvæmu málefni: kynferðisbrotum þar sem börn eru annað hvort þolendur eða gerendur. Við skoðum hvernig þessi brot birtast í dag, hver staða barna og ungmenna er í stafrænum samskiptum og hvaða hlutverki samfélagið gegnir í vernd og viðbrögðum. Sérstök áhersla verður lögð á þá ógn sem stafrænn heimur getur skapað – þar á meðal tælingu (e.grooming) í gegnum samfélagsmiðla eins og Snapchat og TikTok, þar sem gerendur mynda tengsl við börn með það að markmiði að brjóta á þeim.

 Erindi:

  • Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, Barnaheill – Þegar kynferðisbrot eiga sér stað milli unglinga á grunnskólaaldri
  • Skarphéðinn Aðalsteinsson, Lögreglan á Norðurlandi eystra – Tælingar og kynferðisafbrot
  • Svandís Anna Sigurðardóttir, Stígamót – Sjúkást á Sjúktspjall: Sambönd, samskipti og ofbeldi ungmenna á nafnlausu netspjalli
  • Skúli B. Geirdal, sviðsstjóri SAFT – Foreldrar og samfélagsmiðlar: Leiðarvísir um netheima

 Fundastjóri er Hilda Jana

 Í lok erindanna verður pallborðsumræða með fyrirlesurunum þar sem gestum gefst tækifæri til að spyrja og taka þátt í umræðunni.

Með þátttöku fagfólks er markmið málþingsins að varpa ljósi á stöðuna og skapa vettvang til samtals, lærdóms og lausna.

Sérstaklega áhugavert fyrir foreldra, fagfólk, kennara, starfsfólk í tómstundastarfi og aðra sem umhugað er um velferð barna og ungmenna.

Hér er hlekkur á Facebook viðburðinn

Öll velkomin!