Kynningarfundir fyrir foreldra

Haustkynningar skólaárið 2012-2013 fyrir foreldra nemenda í Brekkuskóla verða sem hér segir: 10. sept.  Kynning á starfsáætlun árganga fyrir foreldra barna í 6., 7. og 8. bekk 11. sept.  Kynning á starfsáætlun árganga fyrir foreldra barna í 1. bekk 12. sept.  Kynning á starfsáætlun árganga fyrir foreldra barna í 2. og 3 bekk 13. sept.  Kynning á starfsáætlun árganga fyrir foreldra barna í 4. og 5. bekk 14. sept.  Kynning á starfsáætlun árganga fyrir foreldra barna í 9. og 10. bekk Kynningarnar hefjast allar kl. 08:00 (að morgni) á sal skólans og að lokinni stuttri kynningu á sal frá skólastjórnendum fara foreldrar í heimastofur nemenda þar sem umsjónarkennarar ræða nánar um starfið í árganginum. Áhersla að þessu sinni verður lögð á samstarf foreldra og skóla.