Haustfrí framundan

Framundan er haustfrí 2009, mánudaginn 26. október og þriðjudaginn 27. október eru haustfrídagar. Nemendur eru einnig í leyfi miðvikudaginn 28. október þar sem þá er starfsdagur starfsfólks Brekkuskóla. Þann dag er Frístund lokuð. Nemendur mæta aftur samkvæmt stundaskrá fimmtudaginn 29. október 2009.