Gunnar Úlfarsson nýútskrifaður nemandi Brekkuskóla hlaut viðurkenningu skólanefndar Akureyrarbæjar fyrir félagsþroska og virðingu
fyrir samferðamönnum sínum. Gunnar er einstaklega hlýr og jákvæður einstaklingur sem sýnir mikinn félagslegan þroska og virðir
störf og skoðanir annarra. Hann er réttsýnn og hugsar vel um velferð annarra. Starfsfólk Brekkuskóla óskar Gunnari til hamingju með
viðurkenninguna.