Fyrsta heimsókn 5 ára - seinni hluti

Veigar sýnir hvernig hann notar fyrirmynd
Veigar sýnir hvernig hann notar fyrirmynd
Það voru flottir leikskólanemendur frá  Hólmasól, Lundaseli, Pálmholti og Iðavelli sem mættu í Brekkuskóla í morgun. Bergþóra aðstoðarskólastjóri og Bryndís forstöðukona Frístundar tóku á móti þeim og buðu þau velkomin.  Þau fengu að sjá fjölbreytta verkefnavinnu sem unnin er í skólanum. Þau fóru í danstíma, heimilisfræði, myndmennt, heimsóttu skólastjóra og skrifstofu skólans, fóru í heimsókn í tíma í 1. bekk og léku sér síðan smá stund í Frístund. Næsta heimsókn verður í 13. og 20. mars, en þá fá nemendur að prófa að vera í kennslustund með 1. bekk og fara með þeim í mat. Netpóstur verður sendur til foreldra sem hafa skráð barn sitt í heimsókn úr öðrum leikskólum. Fleiri myndir frá heimsókninni