03.11.2008
Forvarnardagurinn er fimmtudaginn 6. nóvember. Dagskrá 9. bekkjar þennan dag færist yfir á mánudag vegna
árshátíðarvinnu nemenda. Foreldrar/forráðamenn og starfsmenn skólans eru hvattir til að helga daginn forvörnum.
Benda má á eftirfarandi niðurstöður
Unglingar sem verja í það minnsta klukkustund á dag með fjölskyldum sínum, eru síður líklegir til að hefja neyslu
fíkniefna
Ungmenni sem stunda íþróttir og annað skipulagt æskulýðsstarf falla mun síður fyrir fíkniefnum
Því lengur sem ungmenni bíða með að hefja áfengisneyslu, þeim mun ólíklegra er að þau verði
fíkniefnum að bráð
Byggir á niðurstöðum íslenskra vísindamanna sem hafa um árabil rannsakað áhættuhegðun ungmenna og hafa vakið
alþjóðlega eftirtekt
Forvarnardagur 2008 verður haldinn í öllum grunnskólum landsins fimmtudaginn 6. nóvember næstkomandi. Dagurinn er
helgaður nokkrum heillaráðum sem geta forðað börnum og unglingum frá fíkniefnum, ráðum sem eiga erindi við allar fjölskyldur í
landinu.
Forvarnardagurinn er haldin að frumkvæði forseta Íslands í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga,
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Bandalag íslenskra skáta, Reykjavíkurborg, Háskóla
Íslands og Háskólann í Reykjavík.
Verkefnið er stutt af lyfjafyrirtækinu Actavis.
Íslenskar rannsóknir hafa sýnt að þeir unglingar sem verja í það minnsta klukkustund á dag með
fjölskyldum sínum, eru síður líklegir til að hefja neyslu fíkniefna. Að sama skapi sýna niðurstöður að mun ólíklegra
sé að ungmenni sem stunda íþróttir og annað skipulagt æskulýðsstarf, falli fyrir fíkniefnum. Í þriðja lagi sýna
rannsóknirnar fram á að því lengur sem ungmenni bíða með að hefja áfengisneyslu, þeim mun ólíklegra er að þau
neyti síðar fíkniefna.
Niðurstöðurnar byggja á rannsóknum vísindamanna við Háskóla Íslands og Háskólann
í Reykjavík sem hafa um árabil rannsakað áhættuhegðun ungmenna og hafa þær vakið alþjóðlega eftirtekt.
Nánari upplýsingar á http://www.forvarnardagur.is/