Vorskóli 2014

Verðandi nemendum í 1.bekk í Brekkuskóla skólaárið 2014 – 2015 stendur til boða að koma í vorskóla dagana 5. – 6. maí 2014  milli kl.14:00 og 16:00 báða dagana. Nemendur koma í fylgd foreldra/foreldris og hitta verðandi kennara sína sem undirbúið hafa þessar stundir með þeim. MYNDIR úr vorskólanum 5. maí

Tilgangur heimsóknarinnar er að nemendur og kennarar hittist í fyrsta skipti í skólanum og geti rætt saman um það sem bíður þeirra í haust.

Leitast verður við að hafa stundina notalega þar sem kennarar lesa fyrir þau og  gefa þeim kost á að spreyta sig á einföldum verkefnum.

Boðið verður upp á hressingu frá skólanum í mötuneytinu í hléi báða dagana.

Reiknað er með að foreldrar skilji börnin eftir í skólanum þennan tíma. Ef þau treysta barninu ekki til þess að vera eitt er sjálfsagt að dvelja með þeim þennan tíma. Foreldrar þekkja börn sín best.

Ætlast er til að nemendur verði sóttir kl.16:00 báða dagana.

Foreldrafundur

Foreldrafundur verður á sal skólans seinni vorskóladaginn 6. maí kl.14:00. Þar mun fulltrúi stjórnenda fara yfir helstu upplýsingar um skólann og skólastarfið og Rut Indriðadóttir kennari mun kynna lestrarkennsluaðferðina Byrjendalæsi.
Sjáumst í skólanum!

Ragnheiður, Hulda, Elín Auður, Bergþóra og Rut