Brekkuskóli tók þátt í lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar sem haldin var í Kvosinni í Menntaskólanum á Akureyri. Það má með sanni segja að allir keppendur hafi staðið sig vel og var unun að hlusta á fallegan upplestur hjá nemendum í grunnskólunum á Akureyri. Fulltrúar Brekkuskóla voru þau Kristófer Lárus Jónsson og Lilja Helgudóttir varamenn voru Ingunn Rán Bjarnadóttir og Emma Bríet Tómasdóttir. Þess má geta að nemendur úr Brekkuskóla tóku einnig þátt í tónlistarflutningi á hátíðinni. Við erum óendanlega stolt af okkar fólki.
v/Skólastíg | 600 Akureyri kt. 410169-6229 Sími: 414-7900 Frístund sími 414-7979 Netfang: brekkuskoli@akureyri.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um veikindi eða óskir um leyfi nemenda: 414 7900 / brekkuskoli@akureyri.is