Brunaæfing

Miðvikudaginn 14. október 2009 verður brunaæfing í Brekkuskóla kl.10:50. Nemendur hafi með sér skófatnað í kennslustofur eftir fyrri frímínútur að þessu sinni. Starfsfólk skólans kynnir sér og fyrir nemendum sínum rýmingaráætlun í handbók á starfsmannavef. Teikningar af bráðaútgönguleiðum eru í öllum kennslustofum ásamt nafnalistum nemenda. Gangi okkur vel!