Búið er að hólfaskipta skólanum enn frekar þannig að börnunum verður kennt í hópum. 1. – 7. bekkur verður í staðnámi hér í skólanum en 8. -10. bekkur verður í fjarnámi næstu daga, þetta skipulag verður endurskoðað næsta föstudag. Æskilegt er að nemendur í 5. -7. bekk komi með grímur. Skólinn útvegar grímur ef vantar.
Nemendur í 1. – 7. bekk koma inn í skólann samkvæmt neðangreindu skipulagi:
Það er nauðsynlegt að nemendur mæti á tíma sem næst þeim sem settur er í skipulagið með því erum við að lágmarka skörun hópa.
INNGANGUR C, neðsta hæð að sunnanverðu:
1.bekkur mætir kl. 8:00 og kennslu lýkur kl. 13:10 þá tekur við Frístund fyrir þá nemendur sem þar eru skráðir.
INNGANGUR að austan neðsta hæð sem snýr að skólalóð. (ATH. venjulega ekki notaður).
2.bekkur mætir kl. 8:00 og kennslu lýkur kl. 13:10 þá tekur við Frístund fyrir þá nemendur sem þar eru skráðir.
INNGANGUR B að norðanverðu:
3. bekkur mætir kl. 8:00 og fer heim kl. 13:10, því miður verður ekki hægt að bjóða upp á Frístund fyrir 3. bekk á meðan þetta skipulag er í gildi.
5. bekkur mætir kl. 8:05 og fer heim kl. 12:00.
6. bekkur mætir kl. 8:15 og fer heim kl. 12:20.
INNGANGUR A – AÐALINNGANGUR
4. bekkur mætir kl. 8:00 og fer heim k. 12:00.
7. bekkur mætir kl. 8:15 og fer heim kl. 12:10.
Einungis verður boðið upp á hádegismat fyrir nemendur í 1. – 4. bekk og ekki verður afgreiðsla á ávöxtum og mjólk. Hafragrautur verður ekki í boði. Því þurfa nemendur að koma með nesti að heiman og mjög gott er að hafa vatnsbrúsa í skólatöskunni. Ekki er gert ráð fyrir að nemendur noti samlokugrill eða örbylgjuofn í skólanum.
Öll hefðbundin kennsla í list- og verkgreinastofum og íþrótta- og sundkennsla mun falla niður.
Öll umferð um skólann verður áfram takmörkuð eins og mögulegt er.
v/Skólastíg | 600 Akureyri kt. 410169-6229 Sími: 414-7900 Frístund sími 414-7979 Netfang: brekkuskoli@akureyri.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um veikindi eða óskir um leyfi nemenda: 414 7900 / brekkuskoli@akureyri.is