Brekkuskóli sigraði!

Brekkuskóli sigraði í þremur árgöngum af fjórum á UFA grunnskólamótinu nú í vikunni. Það voru 4., 6. og 7. árgangur sem lentu hvorki meira né minna í 1. sæti! Við óskum nemendum og kennurum þeirra innilega til hamingju með þennan frabæra árangur. Aðrir keppendur stóðu sig einnig vel og sýndu prúðmannlega framkomu og drengilega keppni. Samanlagt má segja að við höfum sigrað mótið! Við erum svo stollt af ykkur öllum! Stjórnendur og starfsfólk Brekkuskóla