Bóndadagur

Mikinn merkisdag ber upp á 24. janúar en þá hefst þorri. Þorri er gamalt mánaðarheiti en samkvæmt forníslensku tímatali var þorri fjórði mánuður vetrar. Í skólanum er boðið upp á þorrasmakk á bóndadaginn með grjónagrautnum. Nú á dögum könnumst við við þetta heiti úr hugtökum eins og þorramatur og þorrablót. Þorri var líka talinn erfiðasti vetrarmánuðurinn og því er stundum talað um að þreyja þorrann en það þýðir eiginlega að harka hann af sér eða að komast í gegnum hann, þola tímabundna erfiðleika. Fyrsti dagur þorra nefnist bóndadagur og einmitt þann dag er miður vetur. Í bókinni Komdu og skoðaðu íslenska þjóðhætti má lesa um líf fólks á Íslandi fyrr á tímum, hvað það gerði á þorranum og hvernig árinu var skipt í mánuði eftir gangi tunglsins. Það getur líka verið fróðlegt að lesa um gamlar vinnslu- og matreiðsluaðferðir sem tíðkuðust gjarnan fyrr á tímum. Á þorranum er gott tilefni til að syngja kvæðið góða eftir Kristján Jónsson fjallaskáld, Þorraþrælinn 1866.

Heimildir: 
Almanak fyrir Ísland 2014. Háskóli Íslands gefur út. 
Árni Björnsson. 1993. Saga daganna. Reykjavík, Mál og menning. 
Sölvi Sveinsson. 2011. Táknin í málinu. Reykjavík, Iðunn. 
Vísindavefur Háskóla Íslands www.visindavefur.is