Árshátíð Brekkuskóla

Frá árshátíð Brekkuskóla febrúar 2012
Frá árshátíð Brekkuskóla febrúar 2012
Árshátíð Brekkuskóla verður fimmtudaginn 8. nóvember næstkomandi og verður hún með hefðbundnu sniði. Hér nálgast þú DAGSKRÁ Sýningar og ýmsar uppákomur verða víðs vegar um skólann. Hin vinsæla “ævintýraveröld” með hlutaveltu, tívolíþrautum, draugahúsi, spákonu, andlitsmálun, bíó o.fl. verður á sínum stað. Að venju er það 6. bekkur sem sér um ævintýraveröldina þar sem safna fyrir ferð að Reykjum á næsta skólaári. 7. - 8. bekkur verður með sýningar á stuttmyndum í heimastofum.

Kaffihlaðborð 10. bekkja verður í matsal frá kl. 12:00 - 19:00.  Á hádegissýningunum verður sjoppa 10. bekkinga opin þar sem hægt verður að fá keyptar pylsur og drykk.

Aðgangseyrir er enginn.

Helstu verð í fjáröflun 10. bekkinga:
Kaffihlaðborð: Fullorðnir 1000 kr. og börn 500 kr. (frítt fyrir nemendur á leikskólaaldri)
Pylsur í hádegi kosta 300  kr.
Drykkir eru á verðbilinu 100 - 250 kr.
Rétt er að taka það fram að ekki er hægt að taka við greiðslum með kortum í skólanum.

Árshátíðarball Brekkuskóla verður 23. nóvember fyrir 7. - 10. bekk

Sjáumst í skólanum á hátíðardegi!
Nemendur og starfsfólk Brekkuskóla