Árgangur 2008 fær boð í vorgrill

Verðandi 1. bekkjar nemendur í Brekkuskóla skólaárið 2014 – 2015 og foreldrum þeirra er boðið í vorgrill í porti skólans fimmtudaginn 5. júní milli kl.11:20 og 12:00. Nemendur koma í fylgd foreldra/foreldris og hitta aðra nemendur og skemmta sér með þeim í boði foreldrafélags skólans sem nefnist Vinir Brekkuskóla. Nemendum og foreldrum verður boðið upp á pylsu og drykk í portinu fyrir framan aðalinngang skólans sem snýr að Íþróttahöll. Börnin fá að gjöf boli frá „Vinum Brekkuskóla“. Sjáumst í skólanum! Stjórnendur Brekkuskóla og Foreldrafélag Brekkuskóla