Allir lesa

Nú stendur yfir landsleikurinn Allir lesa, sem hvetur landsmenn til að stunda lestur af öllu tagi.  Menn skrá sig til keppni á www.allirlesa.is og skrá allan lestur, jafnt yndislestur og fræðilestur. Það er hægt að stofna lið eða keppa sem einstaklingur.  Við á Akureyrarstofu höfum skráð lið til keppni og skorum á aðrar deildir bæjarins til að gjöra slíkt hið sama. Þetta er skemmtilegt og skapar mjög líflegar umræður í kaffitímum.  Það eru líka allskyns viðburðir í gangi hér og þar í bænum, sjá viðhengi. Fylgist líka með á www.visitakureyri.is