Við í Brekkuskóla óskum Gísla Frey Sigurðssyni til hamingju með frábæran árangur í söngvakeppni Samfés 2021. Gísli Freyr fór sem fulltrúi félagsmiðstöðvarinnarTróju á Akureyri og lenti í þriðja sæti. Í söngkeppni Samfés keppa unglingar af öllu landinu. Haldnar voru forkeppnir og landshlutakeppnir og voru 30 atriði valin til að keppa í úrslitum.