16.10.2008
Af vef Menntamálaráðuneytisins um breytingar á samræmdum prófum sem tekur gildi skólaárið 2009 -
2010:
Breytingar á samræmdum prófum í grunnskólum
Í nýjum grunnskólalögum nr. 91/2008, sem tóku gildi sl. sumar, er kveðið á um breytingar á samræmdum prófum í
grunnskólum. Ýmsar spurningar hafa vaknað vegna framkvæmdar nýrra laga og því vill menntamálaráðuneyti taka fram eftirfarandi:
Í 39. gr. segir að nemendur í fyrri hluta 10. bekkjar skuli þreyta samræmd könnunarpróf í íslensku, ensku og stærðfræði.
Þessi nýju próf teljast ekki vera lokapróf í grunnskóla líkt og þau samræmdu próf sem hingað
til hafa tíðkast í 10. bekk. Megintilgangur samræmdra könnunarprófa er að veita skólum, nemendum og foreldrum upplýsingar um stöðu
nemenda og skapa færi á að styðja við nám þeirra í viðkomandi greinum áður en grunnskólanámi lýkur. Samræmd
könnunarpróf eiga ekki að liggja til grundvallar inntöku nemenda í framhaldsskóla eins og verið hefur undanfarin ár.
Þar sem ný lög tóku ekki gildi fyrr en í sumar reyndist ekki gerlegt að skipuleggja samræmd könnunarpróf er
halda mætti nú í haust. Þess vegna mæla lögin fyrir um að könnunarpróf í íslensku, ensku og stærðfræði skuli
haldin að vori 2009 fyrir þá nemendur sem nú eru á síðasta ári í grunnskóla. Grunnskólanemendur sem áður hafa
þreytt samræmd lokapróf skulu þreyta samræmd könnunarpróf í íslensku, ensku og stærðfræði.
Frá og með skólaárinu 2009-2010 verða samræmd könnunarpróf haldin að hausti.
Prófin verða sambærileg þeim sem tíðkast hafa í 4. og 7. bekk. Hvorki verða haldin sjúkrapróf né skipaðir
trúnaðarmenn eins og tíðkaðist við framkvæmd samræmdra lokaprófa.
Vakin er athygli á að samræmd könnunarpróf í 10. bekk eru einungis ætluð nemendum í viðkomandi
árgangi.
Loks vill ráðuneytið benda á að skv. 26. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla um val í námi eiga
grunnskólanemendur rétt á að stunda nám í einstökum námsgreinum á framhaldsskólastigi samhliða námi í
grunnskóla. Það er þó háð því að þeir hafi sýnt til þess fullnægjandi færni að mati
skólastjóra viðkomandi grunnskóla, sem veitir nemendum heimild til slíks náms samkvæmt viðmiðum sem sett verða í
aðalnámskrá grunnskóla. Afnám samræmdra lokaprófa á því ekki á nokkurn hátt að torvelda grunnskólanemendum
að leggja stund á nám á framhaldsskólastigi.