Skákfélagið hefur staðið að skákkennslu í þremur grunnskólum í bænum í vetur. Í Brekkuskóla var nú í maíbyrjun efnt til bekkjarmóta í fjórða og fimmta bekk.
Bekkjarmót fjórða bekkjar fór fram 3. maí. Þar voru keppendur 18 talsins og tefldu fimm skákir hver. Jóel Arnar Jónasson var fremstur í hópi jafningja, fékk 4,5 vinninga í skákunum fimm. Á hæla hans komu þeir Valur Ásgrímsson og Jóakim Elvin Sigvaldason með 4 vinninga.
Fimmtabekkjamótið var háð daginn eftir, 4.maí. Þar vor keppendur 12 talsins og bekkjarmeistari varð Egill Ásberg Magnason með 4,5 vinning í fimm skákum. Jöfn í öðru sæti með 4 vinningu urðu þau Alexía Lív Hilmisdóttir og Helgi Kort Gíslason.
Keppnin á báðum mótum var tvísýn og spennandi og keppnisandinn ótvíræður. Úrslitin réðust báða dagana á dramatískan hátt í síðustu umferð.
Vonir standa til þess að skákkennslunni verði haldið áfram á næsta skólaári.
v/Skólastíg | 600 Akureyri kt. 410169-6229 Sími: 414-7900 Frístund sími 414-7979 Netfang: brekkuskoli@akureyri.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um veikindi eða óskir um leyfi nemenda: 414 7900 / brekkuskoli@akureyri.is