Árshátíð Brekkuskóla 2014

Árshátið Brekkuskóla verður fimmtudaginn 13. nóvember. Hér má finna DAGSKRÁ árshátíðar 2014 Sýningar og ýmsar uppákomur verða víðs vegar um skólann. Hin vinsæla “ævintýraveröld” með hlutaveltu, tívolíþrautum, draugahúsi, spákonu, andlitsmálun, bíó o.fl. verður á sínum stað. Að venju er það 6. bekkur sem sér um ævintýraveröldina þar sem safna fyrir ferð að Reykjum á næsta skólaári. Kaffihlaðborð 10. bekkja verður í matsal frá kl. 12:00 - 19:00.  Á hádegissýningunum verður sjoppa 10. bekkinga opin þar sem hægt verður að fá keyptar pylsur og drykk.

Aðgangseyrir á árshátíðina er enginn.

Helstu verð í fjáröflun 6. og 10. bekkinga:

Kaffihlaðborð:
Fullorðnir 1000 kr. og börn 500 kr. (frítt fyrir nemendur á leikskólaaldri)
Pylsur í hádegi kosta 300  kr.
Drykkir eru á verðbilinu 100 - 250 kr.
Ævintýraveröld: Hver miði kostar 100 kr.
Rétt er að taka það fram að ekki er hægt að taka við greiðslum með kortum í skólanum.

Árshátíðarball Brekkuskóla verður (var) 7. nóvember fyrir 7. - 10. bekk

Sjáumst í skólanum á hátíðardegi!
Nemendur og starfsfólk Brekkuskóla