Afmælisdagur Akureyrar miðvikudag

Miðvikudaginn 29. ágúst skunda nemendur og starfsfólk Brekkuskóla í miðbæinn í afmælisveislu í boði Akureyrarbæjar. Skólar bæjarins munu einkenna sig með litum og borðum merktum skólunum. Brekkuskóli verður fjólublár og við mælum með að nemendur klæðist fjólubláu ef það er möguleiki en það væri líka mjög skemmtilegt ef allir sem eiga Brekkuskólapeysu myndu koma í henni þennan dag. Hver og einn getur svo ákveðið hvort hann vill hafa fjólubláa andlitsmálningu.  Hér kemur dagskrá á Ráðhústorgi miðvikudaginn 29. ágúst:   (10:00-10:10) Innkoma nemenda leik- og grunnskóla í miðbæinn

(09:50-10:10) Marimba-band Oddeyrarskóla spilar undir þegar nemendur streyma á torgið.

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri kynnir dagskrána.

Hópsöngur nemenda leik- og grunnskóla.  Ásta Magnúsdóttir kennari við Giljaskóla spilar undir og stýrir söng Afmælissöngurinn (þessi hefðbundni), Eyjafjörður er fagur, Snert hörpu mína).

Óskar Pétursson og Marína Ósk Þórólfsdóttir syngja Akureyrarlagið (Ég sé Akureyri) með börnunum.

Agnes Brá Baldvinsdóttir nemandi við Oddeyrarskóla segir frá tilurð verksins og vinnunni við það.

Agnes Brá og Andri, leikskólanemi á Krógabóli, afhjúpa verkið og leik- og grunnskólanemendur á sviðinu afhenda bæjarstjóra sem tekur við gjöfinni.

Nemendur taka við þakkargjöf frá Akureyrarbæ - bókagjafir.

Hvanndalsbræður leika alls 5 lög - eftir eitt lag segja þeir krökkunum að byrja megi á skúffukökunum&mjólkinni. Ítreka fyrir krökkunum að sýna kurteisi í röðunum (það fá allir!) og að henda ruslinu í rusladallana.  Klára svo lögin eftir þessi skilaboð.

Það eru Hvanndalsbræður sem "loka dagskránni" með síðasta lagi.