Í kvöld – Fjölmennum!
1. október kl. 20 - Aðalfundur-vöfflur-fræðsla
Kæru foreldrar
Við viljum minna á aðalfund foreldrafélagsins næstkomandi miðvikudagskvöld 1. október í hátíðarsal Brekkuskóla
klukkan 20. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa munum við fá stutta kynningu skólastjórnenda á stefnu skólans og reynslu af tölvunotkun við
nám og kennslu.
Að kynningunni lokinni mun Helga Halldórsdóttir, deildarstjóri í Glerárskóla flytja fyrirlestur um samskipti stúlkna en erindi hennar
byggir á starfendarannsókn hennar þar sem unnið var með hóp stúlkna í einum grunnskóla í samstarfi við
skólastjórnendur, umsjónarkennara og foreldra
Markmið rannsóknarinnar var annars vegar að öðlast dýpri skilning á einelti meðal stúlkna og erfiðum samskiptum þeirra og hins vegar að
þróa leiðir sem nýst geta þegar unnið er með samskiptaerfiðleika. Foreldrar drengja eiga ekki síður erindi á fundinn en foreldrar
stúlkna þar sem Helga ræðir einnig um samskipti drengja.
Í Brekkuskóla starfar mjög öflugur foreldrahópur sem er annt um velferð og nám nemenda í skólanum. Mæting á aðalfundi foreldrafélagsins er nánast skylda og viljum við ítreka að ætlast er til að öll heimili
sendi frá sér einn fulltrúa á fundinn. Við viljum að sjálfsögðu láta það fréttast að foreldrar í
Brekkuskóla séu ekki eftirbátar foreldra í Naustaskóla sem settu mætingarmet á aðalfundi sínum í september.
Stjórn foreldrafélagsins hefur verið mönnuð þannig að ekki verður sérstaklega leitað eftir nýjum fulltrúum á
aðalfundinum en vel er tekið á móti öllum þeim sem hafa samband við stjórnina og vilja taka þátt í starfinu í vetur.
Stjórn foreldrafélagsins mun styrkja ferð nemenda í 7. bekk í Reykjaskóla í vetur með kaupum á þjónustu þeirra
á aðalfundinum en nemendur munu framreiða ljúffengar vöfflur og kaffi.
Hlökkum til að sjá ykkur
Stjórnin